EMG rannsókn á hreyfingu er mæling á rafvirkni vöðva á meðan þú framkvæmir ákveðnar hreyfingar, eins og að ganga, hlaupa, lyfta, beygja eða framkvæma æfingar. Hún sýnir hvernig vöðvar virkjast.
EMG stendur fyrir electromyography og byggir á því að rafboð sem fara frá taugakerfinu til vöðvanna eru mæld með rafskautum á tilteknum svæðum. Þannig er hægt að sjá:
- hvaða vöðvar vinna hreyfinguna
- hversu mikið þeir vinna
- í hvaða röð þeir virkjast
- hvort sumir vöðvar eru of- eða vanvirkir

Af hverju er EMG greining á hreyfingu mikilvæg?
Margir verkir og meiðsli tengjast rangri vöðvastjórnun eða ójafnvægi í hreyfingu. Hefðbundin skoðun sýnir oft hreyfingu að utan, en EMG sýnir hvernig taugakerfið er að stýra vöðvunum.
Þetta hjálpar til við að:
- finna orsök stoðkerfisverkja
- greina rangt hreyfimynstur
- bæta líkamsbeitingu
- leiðrétta æfingar
- minnka líkur á meiðslum
- bæta árangur
- fylgjast með bata í endurhæfingu og árangri í æfingum

Hvernig fer EMG rannsókn á hreyfingu fram?
- Viðtal og skoðun á einkennum
- Rafskaut sett á tiltekna vöðva
- Þú framkvæmir hreyfingar eða æfingar sem við eiga
- Vöðvavirkni er mæld og skoðuð
- Niðurstöður skoðaðar og ráðgjöf veitt með það sem þarf að vinna með
Rannsóknin er:
- sársaukalaus
- örugg
- tekur oftast 45–60 mínútur
Fyrir hverja hentar hún?
EMG hreyfigreining hentar bæði:
- einstaklingum með verki í baki, hálsi, hnjám eða öxlum
- fólki með endurtekin meiðsli
- íþróttafólki
- þeim sem vilja bæta hreyfigæði og árangur
- fólki í endurhæfingu eftir meiðsli eða aðgerðir
Hvað kostar EMG greining?
Verð greiningar
- EMG vöðvagreining: 18.500 kr
- Ítarleg hreyfigreining (íþróttir / endurhæfing) 40.000 kr.
- Fyrirspurnir og bókanir berast á [email protected]

