Ég byrjaði í einkaþjálfun hjá Bjödda Í Desember 2018. Í upphafi hafði ég ekki mikla trú á að ég nærði miklum árangri. Var búinn að reyna svo oft sjálfur að byrja en alltaf gefist upp. Ég var í mjög slæmu formi, bæði styrður, með háa fituprósentu og með mikla bakverki sem hefur háð mér lengi. Eftir fyrsta mánuðinn var árangurinn ótrúlegur, bæði hafði ég lést og fituprósentan minnkað. Í dag, 5 mánuðum seinna er ég búinn að léttast um 12kg, fituprósentan búin að minnka um 14%, komið með aukið þol ásamt því að vera mikið betri í bakinu. Björn hefur hvatt mig áfram með mikilli jákvæðni og peppað mig upp þegar ég var kominn að því að gefast upp og hætta. Hann hefur sett niður æfingar sem hafa hentað mér vel og komið með góð ráð varðandi mat og matarvenjur sem hefur skipt miklu máli hjá mér. Ég mæli hiklaust með honum sem einkaþjálfara, jafnvel þó ég hafi ekki þolað hann á sumum æfingunum þegar hann var að gera útaf við mig. Takk fyrir mig vinur, ég væri ekki á þeim stað sem ég er í dag án þín.
Alexander Stefánsson
Langar að þakka Bjödda fyrir frábæran tíma í þjálfun. Byrjaði í haust, gjörsamlega orkulaus og úthaldslaus. Hann sýndi þessu öllu skilning og þolinmæði. Hringdi og var mjög hverjandi og sýndi manni það að honum var ekki sama. Hann var líka ákveðinn og markviss með hvert hann vildi stefna með þjálfunina. Ég mæli með Bjödda og kem til með að vera áfram þar sem ég finn að ég er ekki dugleg án hans. Svo er hann bara þægilegur og gaman að spjalla við og treysta.
Elísabet Reynisdóttir
“Björn Þór er framúrskarandi einkaþjálfari. Ég er búinn að vera í tímum hjá honum í tæpa fjóra mánuði, mæti a.m.k. þrisvar í viku og ég finn verulega framför, ekki bara á líkamanum heldur líka andlega. Þegar ég byrjaði hjá honum í janúar var ég orðinn allt of þungur og sver um mig miðjan, ég var líka slappur og hafði ekki mikið þol. Ég var á núllpunkti og alls ekki sáttur við sjálfan mig, en var einhvern veginn ráðalaus um hvað gera skyldi. Núna er staðan sú að ég hef lést um rúm 8 kg, ummálið hefur minnkað verulega, „belgurinn“ er að hverfa og ég allur stæltari en ég var. Ég hef náð upp miklu betra þoli og get stundað æfingarnar á mun markvissari hátt en í byrjun. Ég er sáttari við sjálfan mig og nýt þess að heyra fólk segja hvað ég líti vel út. Líkamlegt og andlegt ástand er almennt betra, ég sef betur og sprett upp eldsnemma á morgnanna og er hress allan daginn. Heilsan er betri og það er ljóst að regluleg hreyfing hefur góð áhrif til að lækka of háan blóðþrýsting og draga úr einkennum sykursýki sem ég hef greinst með. Ég hef nokkrum sinnum byrjað í líkamsrækt áður en alltaf gefist upp. Ég þurfti klárlega á leiðsögn einkaþjálfara að halda til að stunda æfingarnar jafnt og þétt og gera líkamsræktina markvissa og árangursríka. Ég tel mig heppinn að hafa komist að hjá Birni Þór. Hann er mjög hvetjandi og jákvæður, en líka raunsær um getu mína í æfingunum, og nálgast starfið af fullkominni fagmennsku.”
Þórhallur Eyþórsson
Lorem ipsum dolor sit amet, consectet ad elit sed diam nonummy nibh euismod tincidunt ut laoreet dolore magnaLorem ipsum dolor sit amet, consectet ad elit sed onummy.