Heilsuefling og fyrirlestrar fyrir vinnustaði og hópa.
Björn Þór Sigurbjörnsson hefur haldið fyrirlestra og haldið utan um heilsueflingu innan fyrirtækja, stofnanna og hópa.
Fyrirlestur þar sem útskýrt er á skiljanlegu máli hvernig styrktarþjálfun býr til endurheimtandi orku og virkir fjölþætt stoðkerfi líkamans eins og meltingu, taugakerfi, heila, beina, vöðva og liðamassa og hvernig þessi kerfi vinna saman. Heilsuhópefling sem fær fólk til þess að langa á æfingu.
Heilsueflingin snýr að því í meginatriðum að gera líkams & ástandsmælingar fyrir hópa og á vinnustöðum auk æfingakerfis sem er sniðið að kyrrsetustarfi auk þess að hafa sett upp æfingaútbúnað fyrir vinnustaði. Heilsuefling innan vinnustaða er alltaf að auka rými sitt vegna þeirrar vitundavakningar sem orðið hefur á s.l. áratug tengri aukinni heilsu starfsmanna. Þær mælingar sem í boði eru að framkvæma eru
- Vigtun, ummálsmæling og fitumæling
- Blóðþrýstings, blóðsykurs & blóðfitumæling (kólesteról)
- Súrefnismettun
- Gripstyrksmæling
- Líkamsstöðugreining
- Uppsetning æfingaútbúnaðar í rými
Hver einstaklingur fær útreiknaðar niðurstöður mælinga og skýrslu afhenta út frá þeim niðurstöðum sem mælingarnar sýna, auk heftis með æfingum og teygjum sem ætlað er fólki sem vinnur kyrrsetustarf.
Björn hefur víða haldið fyrirlestra sem hafa hlotið góðan hljómgrunn.
Fyrir nánari upplýsingar sendið fyrirspurn í forminu hér að neðan eða í síma 773 0111.
Fyrirtæki og stofnanir sem Björn hefur unnið inn á