Skip to content Skip to sidebar Skip to footer

Líkaminn vinnur ekki eins úr sömu æfingum hjá öllum

Hvers vegna sama æfingin getur virkað ólíkt eftir mismunandi einstaklingum. Tvær manneskjur geta gert nákvæmlega sömu æfinguna, jafnvel sömu þyngd, sömu stöðu útlima með sama hraða í æfingunni en samt virkjað vöðvana á gjörólíkan hátt. Ástæðan liggur í taugavöðvafræði (e. neuromuscular physiology) og því sem kallast úrvinnslumynstur, eða compensation patterns.

Vöðvaritun eða e. electromyography mælir rafvirkni í vöðvum meðan á hreyfingu stendur og sýnir hvaða vöðvar taka raunverulega á, en ekki bara hvaða vöðva æfingin er „hönnuð“ til að virkja á. Niðurstöður úr EMG-rannsóknum sýna ítrekað að virkjunarmynstur er mjög einstaklingsbundið. T.a.m. liðleiki, vöðvalengd, taugastjórnun og fyrri meiðsli hafa öll áhrif á hvaða vöðvar taka mest af álaginu í tiltekinni hreyfingu.

Svokölluð úrvinnslumynstur / uppbótarvinna e. compensation verða til þegar líkaminn leysir hreyfingu með öðrum vöðvahópi en ætlast var til sem gerist oft vegna þess að einhver vöðvi er veikari, sársaukafullur, eða einfaldlega vanur að taka meira af vinnunni. Þetta er ekki endilega rangt í sjálfu sér; líkaminn er að leysa verkefni á skilvirkasta mögulega hátt miðað við núverandi ástand líkamans. En til lengri tíma getur það viðhaldið ójafnvægi og aukið álag á svæði sem ekki eru vel í stakk búin til að bera það.

Þess vegna er æfingaval aldrei eingöngu spurning um hvaða hreyfing er best samkvæmt kennslubók t.a.m.. Það er spurning um hvernig tiltekinn einstaklingur framkvæmir hana í raun. Tvær útgáfur af sömu æfingu geta verið ólík fótabreidd, ólíkur gripstyrkur, mismunandi útlimalengd t.a.m. og meiðslasaga geta breytt því algjörlega hvaða vöðvi ber meginálagið.

Þetta er ein ástæða þess að mat á hreyfimynstri er jafn mikilvægt og sjálf æfingaáætlunin. Án þess að sjá hvernig einstaklingur leysir hreyfingu í raun er auðvelt að velja æfingar sem viðhalda úrvinnslumynstri frekar en að leiðrétta það. Markmiðið er að tryggja að álagið dreifist nógu vel til að byggja upp stöðugleika áður en virk álagsaukning heldur áfram.

Hlusta má á viðtal við mig og Baldur stofnanda Kine Motion hér um EMG á Bylgjunni

Leave a comment

Póstlisti

Please wait...

Takk fyrir skráninguna, heyrumst!

© Allur réttur áskilinn Líkami.is 2026.